Þunglyndi einkenni | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Hver eru einkenni þunglyndis?

Þunglyndi einkenni

Þunglyndiseinkenni geta verið mjög ólík á milli fólks. Breytilegt er hve mörg einkenni fólk upplifir og hversu alvarleg þau eru. Það sem allir sem upplifa þunglyndi eiga þó sameiginlegt og einkennir þunglyndi er:

Helstu einkenni þunglyndis

Viðvarandi depurð

Viðvarandi depurð, þungt skap eða pirringur.

Áhuga- og/eða ánægjuleysi

Áhugaleysi og/eða ánægjuleysi gagnvart hlutum sem vöktu áður áhuga eða veittu ánægju.

Önnur algeng einkenni þunglyndis

Neikvæðni

Neikvæðar hugsanir um mann sjálfan, aðra og framtíðina.

Breyting á matarlyst

Lystarleysi eða ofát. Sumir upplifa þess vegna mikla þyngdarbreytingu.

Svefnerfiðleikar

Að finnast erfitt að sofna eða halda sér sofandi, vakna fyrr en venjulega og geta ekki sofnað aftur eða aukin svefnþörf.

Þreyta og orkuleysi

Að vera þreyttur mestallan daginn og finnast erfitt að framkvæma hluti sem áður voru auðveldir.

Minni virkni

Hætta að gera hluti sem áður veittu ánægju. Hætta að sinna skyldum. Algengt er að fólk einangri sig frá öðrum.

Sjálfsgagnrýni

Sektarkennd, sjálfsgagnrýni og finnast maður vera einskis virði.

Erfiðleikar með einbeitingu

Eiga erfitt með að halda einbeitingu og finnast erfitt að taka ákvarðanir.

Eirðarleysi

Erfiðleikar með að vera kyrr eða að hreyfa sig hægar en venjulega.

Svartsýni og vonleysi

Neikvæðar hugsanir gagnvart framtíðinni, að hafa ekki trú á að neitt gangi upp hjá manni.

Hugsanir um dauðann

Að óska þess að maður sé dáinn eða sjálfsvígshugsanir.

Minniserfiðleikar

Eiga erfiðara með að muna hluti.

Minni áhugi á kynlífi

Fólk getur haft minni áhuga á að stunda kynlíf og getur dregið úr því.

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRLI LÍÐAN

10 tíma sálfræðimeðferð á netinu

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum þunglyndis. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar og spurningalista. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan yfir áskriftartímann. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

VILTU RÆÐA VIÐ SÁLFRÆÐING AUGLITI TIL AUGLITIS?

Sálfræðiviðtöl á netinu

Hjá Mín líðan getur þú fengið aðstoð við að draga úr einkennum þunglyndis með staðlaðri sálfræðimeðferð við þunglyndi eða fjarviðtölum.

Fjarviðtöl eru 50 mínútna myndfundir þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Fjarviðtöl eru eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er sá að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið. Í fjarviðtölum getur þú fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda, t.d. einkennum þunglyndis, kvíða (t.d. félagskvíða, almenns kvíða, ofsakvíða og heilsukvíða), lágu sjálfsmati og áfallastreitu. Flest stéttarfélög og margir vinnuveitendur niðurgreiða sálfræðikostnað.

Sálfræðingar Mín líðan nota aðeins gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að eru árangursríkar við að draga úr einkennum þunglyndis. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á Íslandi er mælt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta meðferðarúrræði við einkennum þunglyndis.

Í sálfræðiviðtölum hjá Mín líðan er byrjað á að fara yfir og kortleggja vítahring þunglyndis. Skoðað er hvaða þættir viðhalda honum og vítahringurinn brotinn upp með hjálplegum, gagnreyndum aðferðum. Það felur m.a. í sér að endurmeta neikvæðar hugsanir og auka virkni í daglegu lífi.

Bókaðu fyrsta sálfræðiviðtalið strax í dag

Hvernig bóka ég fjarviðtal?

Veldu sálfræðing

Þú velur sálfræðing sem þú vilt hefja meðferð hjá. Hjá Mín líðan starfa reyndir sálfræðingar sem veita þér persónulega og góða þjónustu.

Bókaðu tíma

Þú nýskráir þig og fyllir út upplýsingar um þig. Þinn sálfræðingur hefur samband við þig og þið finnið tíma fyrir fjarviðtal.

Mættu í fjarviðtal

Þú skráir þig inn á heimasvæðið þegar viðtalið er að hefjast, ferð í myndfundakerfið og byrjar fjarviðtalið með þínum sálfræðingi.