Meðferð við lágu sjálfsmati | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN

Meðferð við lágu sjálfsmati

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við lágu sjálfsmati. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar, spurningalista og verkefnabók. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram með skrifuðum texta og hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500 kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

HVAÐ SEGJA SKJÓLSTÆÐINGAR MÍN LÍÐAN?

Umsagnir skjólstæðinga

Sterkari í sjálfinu

„Þessi meðferð hjálpaði mér að efla sjálfa mig, ég lærði helling um sjálfa mig og hvernig lágt sjálfsmat hefur áhrif á svo mikið í lífinu. Ég lærði aðferðir að hjálpa mér að líða betur og er miklu sterkari í sjálfinu eftir þetta."

  • 37 ára kona
    meðferð við lágu sjálfsmati
Skilvirkar aðferðir

„Þessi meðferð hefur hjálpað mér mikið, skilvirkar aðferðir sem hjálpa til við að vinna bug á neikvæðum hugsunum og stuðla að betri líðan."

  • 50 ára karl
    meðferð við lágu sjálfsmati
Hjálpaði mér að öðlast gleði mína aftur

„Þetta hjálpaði mér að öðlast gleði mína aftur, verða jákvæðari og hef mun meira sjálfstraust og nota jákvætt sjálfstal daglega og ég fékk sjálfstraustið til að byrja að hjálpa öðrum og byrja aftur í námi."

  • 43 ára kona
    meðferð við lágu sjálfsmati
Frábær meðferð

„Frábær meðferð sem gaf mér verkfærin til að vinna í sjálfri mér og byggja upp sjálfstraustið mitt."

  • 25 ára kona
    meðferð við lágu sjálfsmati
Mér líður mun betur

„Ef þú ert að hugsa þig um þá skaltu skrá þig í meðferðina Lágt sjálfsmat - Mér líður mun betur og ætla að skrá mig í aðra meðferð. Mikil hjálp hér, einfalt, þægilegt og gott að leita til fagaðilana."

  • 55 ára kona
    meðferð við lágu sjálfsmati
Gott námskeið

„Verið viðbúin að þetta muni taka þann tíma sem upp er gefinn. Ef maður ætla að fá eitthvað út úr námskeiðinni að vinna verkefnin og æfingarnar og byðja um aðstoð hjá sálfræðingnum sem þú færð í tengslum við verkefnið."

  • 48 ára kona
    meðferð við lágu sjálfsmati

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Hvernig er meðferðin uppbyggð?

1. Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að bæta andlega líðan og auka sjálfstraust þitt.
  • Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
2. Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
3. Skilaboð til sálfræðings
Sálfræðingur þinn er ávallt innan handar. Þú getur sent honum skilaboð hvenær sem er og fengið aðstoð og stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
4. Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
5. Verkefnabók
Í lok hvers tíma færðu aðgang að verkefnabók með efni tímans.
  • Þú hefur aðgang að verkefnabókinni eftir að áskriftartímanum lýkur

Hvernig er dregið úr lágu sjálfsmati?

Meðferðin hjálpar þér að:

Þekkja einkenni lágs sjálfsmats

Þú lærir hvað lágt sjálfsmat er og hvernig það þróaðist og hefur áhrif á þig í daglegu lífi.

Brjóta upp vítahring lágs sjálfsmats

Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.

Draga úr óhjálplegri sjálfsgagnrýni

Þú lærir að draga úr óhjálplegri sjálfsgagnrýni og neikvæðum skoðunum sem þú hefur á þér.

Koma auga á jákvæða eiginleika

Þú lærir að koma auga á jákvæða eiginleika í þínu fari og eykur þannig sjálfstraust þitt.

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Náðu tökum á lágu sjálfsmati!

Þeir sem finna fyrir lágu sjálfsmati eiga oft erfitt með að taka fyrsta skrefið. Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu er frábær kostur til að byrja að auka sjálfstraust þitt. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir lágu sjálfsmati í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefið í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú að draga úr sjálfsgagnrýni, endurmeta neikvæð viðhorf og koma auga á jákvæða eiginleika í þínu fari. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan og öðlist aukið sjálfstraust!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.