Meðferð við félagskvíða | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN

Meðferð við félagskvíða

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum félagskvíða. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar, spurningalista og verkefnabók. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram með skrifuðum texta og hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500 kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

HVAÐ SEGJA SKJÓLSTÆÐINGAR MÍN LÍÐAN?

Umsagnir skjólstæðinga

Ég mæli eindregið með þessari meðferð

„Ég hef mikið nýtt mér efnið sem ég lærði í meðferðinni og er farin að takast á við þætti sem ég gerði ekki áður, t.d. tala á fundum, fara í bíó og sund. Ég mæli eindregið með þessari meðferð, þetta er nokkur vinna en vel þess virði."

  • 57 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Líður 100x betur

„Mér líður 100x betur og ég mun aldrei gleyma framförunum mínum! Ég get talað við hvern sem er og er ekki hrædd við að vera ég sjálf lengur.“

  • 21 árs kona
    meðferð við félagskvíða
Góð meðferð

„Góð meðferð til þess að læra æfingar sem hægt er að beita til þess að takast á við félagskvíða."

  • 45 ára karl
    meðferð við félagskvíða
Góð verkfæri

„Meðferðin veitti mér góð verkfæri sem skila árangri og hjálpa mér að takast á við félagskvíða. Ég lærði einnig að ég er ekki ein um að upplifa einkennin og að það eru til ótal leiðir til að minnka kvíðann."

  • 24 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Kom mér á óvart

„Kom mér á óvart hversu hjálpleg meðferðin er. Hentaði mér mjög vel að geta unnið æfingar og gert verkefnin þegar mér hentaði."

  • 50 ára kona
    meðferð við félagskvíða
Opnaði huga minn að betri líðan

„Hjálpaði mér að læra hvað kvíði er í raun og veru og opnaði huga minn bókstaflega að betri líðan."

  • 31 árs kona
    meðferð við félagskvíða

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Hvernig er meðferðin uppbyggð?

1. Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að bæta andlega líðan og auka sjálfstraust þitt.
  • Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
2. Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
3. Skilaboð til sálfræðings
Sálfræðingur þinn er ávallt innan handar. Þú getur sent honum skilaboð hvenær sem er og fengið aðstoð og stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
4. Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
5. Verkefnabók
Í lok hvers tíma færðu aðgang að verkefnabók með efni tímans.
  • Þú hefur aðgang að verkefnabókinni eftir að áskriftartímanum lýkur

Hvernig er dregið úr einkennum félagskvíða?

Meðferðin hjálpar þér að:

Þekkja einkenni félagskvíða

Þú lærir hvað félagskvíði felur í sér og lærir að vera meðvitaðri um eigin félagskvíðaeinkenni.

Brjóta upp vítahring félagskvíða

Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.

Draga úr kvíða í félagslegum aðstæðum

Þú lærir að fara í félagslegar aðstæður sem þú hefur forðast eða fundið fyrir kvíða í.

Auka sjálfstraust þitt í samskiptum

Þú lærir að sjá jákvæða eiginleika í þínu fari og endurmeta neikvæðar skoðanir.

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Náðu tökum á félagskvíðanum!

Þeir sem finna fyrir einkennum félagskvíða eiga oft erfitt með að leita sér aðstoðar sálfræðings. Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu er frábær kostur til að byrja að draga úr félagskvíða. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir kvíða í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefið í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú að brjóta upp vítahring félagskvíða sem felur m.a. í sér að læra að fara í aðstæður sem valda þér kvíða. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan og öðlist aukið sjálfstraust í samskiptum!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.