Meðferð við kvíða | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN

Meðferð við kvíða

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum kvíða. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar, spurningalista og verkefnabók. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram með skrifuðum texta og hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500 kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

HVAÐ SEGJA SKJÓLSTÆÐINGAR MÍN LÍÐAN?

Umsagnir skjólstæðinga

Fagmannlega staðið að öllu

„Mæli hiklaust með meðferð hjá Mín líðan. Fagmannlega staðið að öllu, spurningum svarað fljótt og sömuleiðis endurgjöf eftir hvern tíma. Gott að geta unnið í sjálfum sér á sínum hraða og í því umhverfi sem manni líður best í. Takk fyrir mig."

  • 56 ára kona
    meðferð við kvíða
Líður mikið betur

„Þessi meðferð hjálpaði mér mikið að takast á við minn kvíða og kenndi mér aðferðir til þess að minnka hann. Lærði mjög mikið og líður mikið betur eftir hana. Mæli með þessari meðferð fyrir þá sem glíma við kvíða."

  • 24 ára kona
    meðferð við kvíða
Hefur hjálpað mér mikið

„Þessi meðferð við kvíða hefur hjálpað mér mikið bæði í að skilja hvað ég er að berjast við og líka að finna hjálpartæki í baráttunni við kvíða."

  • 39 ára karl
    meðferð við kvíða
Mæli með þessu fyrir alla

„Þetta er einfalt og auðskilið ferli til að takast á við kvíða. Þú færð út úr þessu það sem þú setur í verkefnið. Mæli með þessu fyrir alla sem vilja aðeins taka til í sér og láta sér líða betur."

  • 40 ára karl
    meðferð við kvíða
Sálfræðingur var til staðar allan tímann

„Ég hef alla tíða verið föst í vítahring kvíða, mismikið. Meðferðin hélt vel utan um mig, Sálfræðingur var til staðar allan tímann. Mér leið vel þegar ég var í meðferðartímum og æfingarnar voru gagnlegar."

  • 34 ára kona
    meðferð við kvíða
Mjög hjálpleg meðferð

„Þetta er mjög hjálpleg meðferð og ég ætla að reyna að halda áfram að nýta öll þau tól og gögn sem ég fékk hér til þess að halda áfram að vinna í mér."

  • 46 ára karl
    meðferð við kvíða
Kemur á óvart

„Þau hjá Mín Líðan eru skjót að svara öllum spurningum og alltaf tilbúin til þess að aðstoða. Kemur á óvart hversu persónuleg meðferðin er þó að hún sé rafræn og einungis í með texta."

  • 21 ára kona
    meðferð við kvíða

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Hvernig er meðferðin uppbyggð?

1. Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að draga úr kvíða.
  • Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
2. Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
3. Skilaboð til sálfræðings
Sálfræðingur þinn er ávallt innan handar. Þú getur sent honum skilaboð hvenær sem er og fengið aðstoð og stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
4. Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
5. Verkefnabók
Í lok hvers tíma færðu aðgang að verkefnabók með efni tímans.
  • Þú hefur aðgang að verkefnabókinni eftir að áskriftartímanum lýkur

Hvernig er dregið úr einkennum kvíða?

Meðferðin hjálpar þér að:

Þekkja helstu einkenni kvíða

Þú lærir hvað kvíði felur í sér og lærir að vera meðvitaðri um þín kvíðaeinkenni.

Brjóta upp vítahring kvíða

Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.

Breyta neikvæðum hugsunarhætti

Þú lærir að koma auga á óhjálplegar hugsanir og sjá þær út frá nýju sjónarhorni.

Breyta óhjálplegri hegðun

Þú lærir að fara í kvíðavekjandi aðstæður sem þú hefur forðast eða fundið fyrir kvíða í.

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Náðu tökum á kvíðanum!

Þeir sem finna fyrir einkennum kvíða eiga oft erfitt með að taka fyrsta skrefið. Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu er frábær kostur til að byrja að draga úr kvíða. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir kvíða í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefið í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú m.a. að draga úr neikvæðum hugsunarhætti og fara í aðstæður sem valda þér kvíða. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.