Meðferð við þunglyndi | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRI LÍÐAN

Meðferð við þunglyndi

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum þunglyndis. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar, spurningalista og verkefnabók. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram með skrifuðum texta og hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500 kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.

HVAÐ SEGJA SKJÓLSTÆÐINGAR MÍN LÍÐAN?

Umsagnir skjólstæðinga

Fór fram úr væntingum mínum

„Meðferðin hjá Mín líðan fór fram úr væntingum mínum. Fyrst var ég frekar svartsýnn á að fara í meðferð "bara á netinu" en ekki tala við neinn í persónu. En þegar meðferðin byrjaði þá fannst mér ég geta opnað mig meira því ég var ekki beint fyrir framan ókunnuga manneskju."

  • 38 ára kynsegin
    meðferð við þunglyndi
Mæli hiklaust með

„Ég kláraði meðferð við þunglyndi hjá Mín Líðan og hef allt jákvætt um hana að segja. Mér fannst frábært að geta byrjað meðferðina strax og lærði margar leiðir til að takast á við þunglyndið. Mæli hiklaust með!"

  • 33 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Líðan mín hefur tekið miklum framförum

„Meðferðin var krefjandi en að samas kapi ótrúlega hjálpleg og gefandi. Líðan mín hefur tekið miklum framförum á síðustu mánuðum, eitthvað sem að ég hefði ekki trúað og er ótrúlega þakklát fyrir. Eitthvað sem að allir ættu að láta reyna á."

  • 37 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Sýndi mér að horfa á hugsanir sem skoðanir

„Meðferðin sýndi mér skýrt hvernig hugsanir mínar, tilfinningar og líðan eru tengd og hvernig ég á að horfa á hugsanir mínar sem skoðanir en ekki eitthvað sem býr í mér."

  • 26 ára karl
    meðferð við þunglyndi
Gagnast mér út lífið

„Finn fyrir vellíðan sem ég hef aldrei fundið áður eftir þessa meðferð og aðferðirnar sem ég lærði munu gagnast mér út lífið.“

  • 40 ára kona
    meðferð við þunglyndi
Bjargaði lífi mínu

„Meðferðin hjá Mín líðan bjargaði lífi mínu. Frábær og persónuleg þjónusta sem sálfræðingarnir gefa sér tíma í að fara yfir svör og vangaveltur sjúklinga. Ég mæli hiklaust með þessari þjónustu."

  • 26 ára kona
    meðferð við þunglyndi

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Hvernig er meðferðin uppbyggð?

1. Fræðsla
Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem hjálpa þér að bæta andlega líðan og auka sjálfstraust þitt.
  • Meðferðin inniheldur 10 meðferðartíma
  • Hver tími tekur 30–60 mínútur í yfirferð
  • Meðferðin er opin í 14 vikur frá kaupum
2. Verkefni og æfingar
Þú gerir verkefni og æfingar sem hjálpa þér að tileinka þér þær aðferðir sem farið er yfir í fræðslunni.
  • Gagnvirkar æfingar
  • Endurgjöf frá sálfræðingi á verkefni innan 1-3 virkra daga
  • Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta
3. Skilaboð til sálfræðings
Sálfræðingur þinn er ávallt innan handar. Þú getur sent honum skilaboð hvenær sem er og fengið aðstoð og stuðning sem hentar þér.
  • Skilaboðum er yfirleitt svarað samdægurs
  • Skilaboðin eru send á milli í skrifuðum texta
4. Spurningalistar
Þú svarar stöðluðum spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina til að meta árangur þinn í meðferðinni.
  • Í byrjun hvers tíma metur þú einnig þína líðan á bilinu 0-10 og fylgist með framvindunni
5. Verkefnabók
Í lok hvers tíma færðu aðgang að verkefnabók með efni tímans.
  • Þú hefur aðgang að verkefnabókinni eftir að áskriftartímanum lýkur

Hvernig er dregið úr einkennum þunglyndis?

Meðferðin hjálpar þér að:

Þekkja einkenni þunglyndis

Þú lærir hvað þunglyndi felur í sér og lærir að vera meðvitaðri um þín þunglyndiseinkenni.

Brjóta upp vítahring þunglyndis

Þú lærir aðferðir sem geta gagnast þér við að brjóta upp þann vítahring sem þú ert í.

Breyta neikvæðum hugsunarhætti

Þú lærir að koma auga á óhjálplegar hugsanir og sjá þær út frá nýju sjónarhorni.

Auka virkni þína í daglegu lífi

Þú lærir aðferðir sem hjálpa þér að takast á við daglegt líf og draga úr félagslegri einangrun.

10 TÍMA STÖÐLUÐ SÁLFRÆÐIMEÐFERÐ Á NETINU

Náðu tökum á þunglyndinu!

Þeir sem finna fyrir einkennum þunglyndi eiga oft erfitt með að taka fyrsta skrefið. Stöðluð sálfræðimeðferð á netinu er frábær kostur til að byrja að draga úr þunglyndi. Það skiptir ekki máli hvort þú finnir fyrir depurð í ákveðnum aðstæðum eða almennt í daglegu lífi, meðferðin getur verið þægileg leið til að stíga fyrsta skrefið í átt að betri líðan. Í meðferðinni lærir þú m.a. að draga úr neikvæðum hugsunarhætti, auka virkni í daglegu lífi og bæta sjálfstraust þitt. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan!

39.900 kr.

fyrir meðferðina

14.500kr./mán.

Í þrjá mánuði.
Heildargreiðsla: 43.500 kr.