Arnar Ingi Friðriksson sálfræðingur | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

sálfræðingur

Arnar Ingi Friðriksson

Arnar Ingi starfar sem sálfræðingur hjá Mín líðan og býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna. Arnar styðst fyrst og fremst við HAM (hugræn atferlismeðferð) en einnig ACT (acceptance and comittment therapy) og núvitund (mindfulness) – allt eftir þörfum hvers og eins. Arnar veitir sálfræðiþjónustu við hvers konar sálrænum vanda og brennur fyrir að aðstoða fólk að takast á við persónulegar áskoranir og bæta lífsgæði þess. Arnar Ingi getur veitt sálfræðiviðtöl eftir kl. 16 á daginn og um helgar.

Sérfræði- og áhugasvið

Arnar Ingi beitir gagnreyndum aðferðum við greiningu og meðferð á sálrænum vanda. Hann vinnur með fjölþættan vanda, svo sem streitu, svefnvanda, kvíða (m.a. félagskvíða, almennan kvíða og áhyggjur, ofsakvíða), þunglyndi, lágt sjálfsmat, samskiptavanda og reiðivanda. Hann hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við einkenni félagskvíða, reiðivanda, fullkomnunaráráttu og svefnvanda. Í fyrri störfum hefur Arnar einnig öðlast reynslu í að veita ráðgjöf og fræðslu til foreldra barna með tilfinningavanda.

Menntun og starfsreynsla

Arnar Ingi lauk meistaragráðu úr klínískri sálfræði vorið 2016 og hlaut starfsréttindi sama ár. Arnar hefur unnið sem sálfræðingur hjá Mín líðan frá 2022 þar sem hann sinnir fjarviðtölum. Áður starfaði hann sem sálfræðingur hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni þar sem hann sinnti greiningu og meðferð við kvíða, þunglyndi og öðrum tilfinningavanda. Þar áður starfaði hann sem skólasálfræðingur á Fræðslu- og frístundasviði Mosfellsbæjar. Einnig fékk Arnar starfsþjálfun hjá Reykjalundi og Landspítalanum á árunum 2015 og 2016. Þar sinnti hann meðal annars greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.

Endurmenntun er mikilvægur hluti af starfi sálfræðings og leitast Arnar Ingi við að sækja reglulega ráðstefnur, námskeið, vinnustofur og aðra fræðslu til sérfræðinga í faginu til að viðhalda þekkingu sinni og færni.

Rannsóknir

  • Cognitive Function and Social Cognition in Young First-Episode Psychosis Patients
  • The Impact of Optimism and Pessimism on the Creation of False Memories: Gender Differences

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Arnar Inga með því að senda tölvupóst á arnar@minlidan.is.