Árátta og þráhyggja | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Hvað er árátta og þráhyggja?

Árátta og þráhyggja

Þráhyggja felur í sér áleitnar og óboðnar hugsanir, hvatir eða ímyndir sem valda kvíða. Þessar óþægilegu hugsanir geta snúist um margt en algengt er að þær snúist um smit (t.d. að koma við eitthvað sem gæti valdið smiti), efasemdir (t.d. hvort slökkt sé á eldavél), ofbeldisfullar hugsanir (t.d. að skaða einhvern) eða kynferðislegar hugsanir (t.d. sjá eitthvað klámfengið fyrir sér). Oft skammast fólk sín fyrir þessar hugsanir og hræðist að aðrir áliti sig skrýtið. Þessar hugsanir eru ekki í samræmi við raunverulegar skoðanir (t.d. foreldri sem sér fyrir sér að meiða barnið sitt) en margir telja þessar hugsanir endurspegla hvað þeim langar að gera í raun og veru. Það er eðlilegt að fá skrýtnar og óboðnar hugsanir í hugann, en þeir sem eru með þráhyggju og áráttu telja þessar hugsanir óeðlilegar og að það sé eitthvað að þeim fyrir að fá þær upp í hugann.

Fólk bregst oft við með áráttu, þ.e. telur sig þurfa að endurtaka ákveðnar athafnir til að draga úr kvíða og koma í veg fyrir þá hættu sem það telur stafa af þessum hugsunum (t.d. raða hlutum, þvo sér í sífellu, telja í huganum eða endurtaka orð og setningar). Dæmi um það eru áhyggjur af því að því að smitast af einhverju (þráhyggja) og þvo sér endurtekið til að koma í veg fyrir smit (árátta). Oftast er fólk meðvitað um að áráttan og þráhyggjan eru órökréttar en á erfitt með að stoppa sig af.

Dragðu úr þráhyggju og/eða áráttu með aðstoð sálfræðings

Hvernig getum við hjálpað þér?

Hjá Mín líðan getur þú fengið aðstoð við að draga úr einkennum þráhyggju og/eða áráttu með fjarviðtölum. Fjarviðtöl eru 50 mínútna myndfundir þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Fjarviðtöl eru eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er sá að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið. Í fjarviðtölum getur þú fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda, t.d. einkennum áráttu og þráhyggju, einkennum kvíða (t.d. félagskvíða, almenns kvíða, ofsakvíða og heilsukvíða), þunglyndislágu sjálfsmati og áfallastreitu. Flest stéttarfélög og margir vinnuveitendur niðurgreiða sálfræðikostnað.

Sálfræðingar Mín líðan nota aðeins gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að eru árangursríkar við að draga úr einkennum áráttu og þráhyggju. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á Íslandi er mælt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta meðferðarúrræði við flestum gerðum sálræns vanda.

Í sálfræðimeðferð hjá Mín líðan er byrjað á að fara yfir og kortleggja vítahring þráhyggju og/eða áráttu, skoðað er hvaða þættir viðhalda þráhyggju og/eða áráttu og vítahringurinn brotinn upp með hjálplegum, gagnreyndum aðferðum.

Taktu fyrsta skrefið í átt að betri líðan

Hvernig bóka ég fjarviðtal?

Veldu sálfræðing

Þú velur sálfræðing sem þú vilt hefja meðferð hjá. Hjá Mín líðan starfa reyndir sálfræðingar sem veita þér persónulega og góða þjónustu.

Bókaðu tíma

Þú nýskráir þig og fyllir út upplýsingar um þig. Þinn sálfræðingur hefur samband við þig og þið finnið tíma fyrir fjarviðtal.

Mættu í fjarviðtal

Þú skráir þig inn á heimasvæðið þegar viðtalið er að hefjast, ferð í myndfundakerfið og byrjar fjarviðtalið með þínum sálfræðingi.