Streita einkenni | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Hver eru einkenni streitu?

Streita einkenni

Streita er viðbragð líkamans við andlegu, líkamlegu eða tilfinningalegu álagi. Óhófleg streita er viðvarandi og truflar daglegt líf. Þegar við erum undir miklu álagi í langan tíma getur það haft slæm áhrif á okkur og valdið því að við erum með sífelldar áhyggjur, þráðurinn verður styttri, við getum átt erfitt með að einbeita okkur og átt í erfiðleikum með svefn. Líkami okkar ræður við minniháttar streitu en langvarandi, viðvarandi og óhófleg streita getur gert okkur erfiðara fyrir að takast á við daglegt líf og dregið úr lífshamingju okkar. 

Dæmi um einkenni streitu

Áhyggjur, ótti og vanlíðan

Að finna fyrir áhyggjum gagnvart fortíð, nútíð og framtíð ásamt almennri vanlíðan.

Neikvæðar hugsanir

Að gagnrýna sjálfan sig á ósanngjarnan hátt ásamt því að gera miklar kröfur til sín.

Þreyta og úthaldsleysi

Að finna fyrir þreytu yfir daginn og endast stuttlega í því sem fólk tekur sér fyrir hendur.

Eirðarleysi og óróleiki

Erfiðleikar með að vera kyrr.

Einbeitingarerfiðleikar

Eiga erfitt með að halda einbeitingu og finnast erfitt að taka ákvarðanir.

Minniserfiðleikar

Eiga erfiðara með að muna hluti.

Svefnerfiðleikar

Að finnast erfitt að sofna eða halda sér sofandi, vakna fyrr en venjulega og geta ekki sofnað aftur eða aukin svefnþörf.

Að vera uppspenntur

Að vera sífellt á verði og eiga erfitt með að ná sér niður.

Skapsveiflur

Mismunandi tilfinningar koma og fara hratt.

Ýmis líkamleg einkenni

Að finna fyrir líkamlegum einkennum (t.d. hraður hjartsláttur, oföndun, vöðvaspenna, hausverkur og magaverkur)

Aukinn pirringur, reiði, depurð og/eða kvíði

Að finna fyrir líkamlegum einkennum (sjá nánar hér fyrir neðan).

TAKTU FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ BETRLI LÍÐAN

5 tíma netnámskeið við streitu

Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu við vægum til miðlungs einkennum kvíða. Meðferðartímarnir innihalda fræðslu, verkefni, æfingar og spurningalista. Þú lærir hagnýtar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og hvernig á að beita þeim í daglegu lífi. Öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er á öruggu heimasvæði Mín líðan yfir áskriftartímann. Markmiðið er að þú náir tökum á þinni líðan með aðstoð sálfræðings!

VILTU RÆÐA VIÐ SÁLFRÆÐING AUGLITI TIL AUGLITIS?

Sálfræðiviðtöl á netinu

Hjá Mín líðan getur þú fengið aðstoð við að draga úr streitu með fjarviðtölum. Fjarviðtöl eru 50 mínútna myndfundir þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis með öruggum hætti í gegnum internetið. Fjarviðtöl eru eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er sá að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið. Í fjarviðtölum getur þú fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda, t.d. einkennum þunglyndis, kvíða (t.d. félagskvíða, almenns kvíða, ofsakvíða og heilsukvíða), lágu sjálfsmati og áfallastreitu. Flest stéttarfélög og margir vinnuveitendur niðurgreiða sálfræðikostnað.

Sálfræðingar Mín líðan nota aðeins gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að eru árangursríkar við að draga úr einkennum streitu. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á Íslandi er mælt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta meðferðarúrræði við flestum gerðum sálræns vanda.

Í sálfræðiviðtölum hjá Mín líðan er byrjað á að fara yfir og kortleggja vítahring streitu, skoðað er hvaða þættir viðhalda henni og vítahringurinn brotinn upp með hjálplegum, gagnreyndum aðferðum.

Bókaðu fyrsta sálfræðiviðtalið strax í dag

Hvernig bóka ég fjarviðtal?

Veldu sálfræðing

Þú velur sálfræðing sem þú vilt hefja meðferð hjá. Hjá Mín líðan starfa reyndir sálfræðingar sem veita þér persónulega og góða þjónustu.

Bókaðu tíma

Þú nýskráir þig og fyllir út upplýsingar um þig. Þinn sálfræðingur hefur samband við þig og þið finnið tíma fyrir fjarviðtal.

Mættu í fjarviðtal

Þú skráir þig inn á heimasvæðið þegar viðtalið er að hefjast, ferð í myndfundakerfið og byrjar fjarviðtalið með þínum sálfræðingi.