Sálfræðiviðtöl | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

Taktu fyrsta skrefið í átt að betri líðan

Sálfræðiþjónusta á netinu!

Mín líðan veitir alhliða sálfræðiþjónustu á netinu: 10 tíma staðlaðaðar sálfræðimeðferðir með skriflegum samskiptum, fjarviðtöl sem eru hefðbundin sálfræðiviðtöl í gegnum netið og 5 tíma netnámskeið við streitu. Einnig býður Mín líðan upp á sálfræðiþjónustu fyrir fyrirtæki.

HVAÐ ERU FJARVIÐTÖL?

Myndfundir við sálfræðing

Fjarviðtöl eru hefðbundin sálfræðiviðtöl í gegnum netið þar sem þú átt samskipti við sálfræðing augliti til auglitis.

Þú færð aðstoð við hvers konar sálrænum vanda, s.s. þunglyndi, lágu sjálfsmati, streitu, svefnvanda og kvíða (t.d. félagskvíða, námskvíða, ofsakvíða og heilsukvíða). Einnig er hægt að fá aðstoð við að vinna úr áföllum og erfiðum minningum, bæta lífsgæði og takast á við persónulegar áskoranir.

HVAÐ KOSTAR FJARVIÐTAL?

Niðurgreitt af stéttarfélögum

Eitt fjarviðtal er 50 mínútur og kostar 19.000-20.000 kr. (auk 1,5-2% þjónustugjalds frá Kara Connect). Hægt er að óska eftir 30 mínútna fjarviðtali. Mismunandi er hversu mörg fjarviðtöl hver og einn þarf.

Flest stéttarfélög niðurgreiða sálfræðiþjónustu hjá Mín líðan og er upphæð niðurgreiðslu mismunandi (sjá nánar hér). Stundum niðurgreiðir félagsþjónusta sveitarfélaga kostnaðinn. Að auki niðurgreiða sum fyrirtæki sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn.

ERU FJARVIÐTÖL ÖRUGG?

Öruggur hugbúnaður fyrir fjarviðtöl

Kara Connect er öruggur hugbúnaður sem notaður er fyrir fjarviðtöl. Þar er unnt að eiga samskipti á aðgengilegan hátt. Kara fylgir ítrustu öryggiskröfum persónuverndar varðandi persónuupplýsingar og gögn um skjólstæðinga.

Gögnin þín eru örugg og hýst á öruggu svæði. Öll samskipti við sálfræðing eru dulkóðuð með öruggum hætti. Kara starfar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Hvernig bóka ég fjarviðtal?

Veldu sálfræðing

Þú velur sálfræðing sem þú vilt hefja meðferð hjá. Hjá Mín líðan starfa reyndir sálfræðingar sem veita þér persónulega og góða þjónustu.

Bókaðu tíma

Þú nýskráir þig og fyllir út upplýsingar um þig. Þinn sálfræðingur hefur samband við þig og þið finnið tíma fyrir fjarviðtal.

Mættu í fjarviðtal

Þú skráir þig inn á heimasvæðið þegar viðtalið er að hefjast, ferð í myndfundakerfið og byrjar fjarviðtalið með þínum sálfræðingi.

Ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að

Algengar spurningar

  • Fjarviðtöl eru hefbundin sálfræðiviðtöl í gegnum netið, sem fara fram með öruggum myndfundir. Þau eru eins og sálfræðiviðtöl á stofu, eini munurinn er að þú átt samskipti við þinn sálfræðing í gegnum netið. Í fjarviðtölum getur þú fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda.

  • Þú ýtir á 'Velja sálfræðing' hér fyrir ofan. Þá færðu upp lista af sálfræðingum Mín líðan. Þú ýtir á 'Bóka tíma' hjá þeim sálfræðingi sem þú óskar eftir meðferð á og flyst þá yfir á síðu Kara Connect, sem er hugbúnaðurinn sem notaður er fyrir fjarviðtölin. Þar ýtir þú á 'Óska eftir þjónustu' og skráir grunnupplýsingarnar þínar. Þér verður boðinn tími í gegnum tölvupóst sem þú getur samþykkt eða hafnað.

  • 1) Eitt fjarviðtal er samtals 50 mínútur og kostar 19.000-20.000 kr. (auk 1,5-2% þjónustugjalds frá Kara Connect). Verð fer eftir því hjá hvaða sálfræðingi þú bókar. 2) Áður en þú hefur meðferð hjá þínum sálfræðingi ertu beðin(n) um að fylla inn kortaupplýsingar á heimasvæði Kara Connect. Greiðsla fyrir fjarviðtal er dregin af kortinu að viðtali loknu. Hægt er að fá greiðslukvittun á heimasvæði Kara Connect. 3) Flest stéttarfélög niðurgreiða sálfræðikostnað hjá Mín líðan. Í sumum tilfellum niðurgreiðir félagsþjónusta sveitarfélaga kostnaðinn. Sum fyrirtæki niðurgreiða sálfræðimeðferð fyrir sína starfsmenn. Kannaðu hvaða réttindi þú hefur hjá þínu stéttarfélagi, hverfisfélagsþjónustu eða vinnustað.

  • 1) Í fysta sálfræðiviðtalinu er farið yfir hvers vegna þú ákvaðst að leita til sálfræðings, hversu lengi þú hefur fundið fyrir vanlíðan og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf. Í lok viðtalsins er farið yfir hvaða meðferðarleiðir eru í boði fyrir þig og næsti tími er bókaður ef óskað er eftir því. 2) Hefðbundin sálfræðimeðferð nær yfirleitt frá 10-20 fjarviðtölum, en það er mjög einstaklingsbundið hvað hver og einn þarf mörg viðtöl. Sumir þurfa færri og sumir fleiri. Í fyrsta tímanum er áætlað hversu mörg fjarviðtöl þú munt þurfa.

  • Nauðsynlegt er að afbóka fjarviðtal daginn áður til að komast hjá gjaldtöku. Ef afbókað er eftir kl. 16 daginn fyrir viðtalið er rukkað fullt gjald. Einnig er rukkað fullt gjald fyrir fjarviðtöl sem ekki er mætt í. Þú getur afbókað viðtal með því að senda tölvupóst á minlidan@minlidan.is eða með því að senda tölvupóst á þinn sálfræðing. Hafa ber í huga að samstarfsaðilar Mín líðan greiða ekki fyrir viðtöl sem ekki er mætt í, það fellur á þinn hlut að greiða fyrir slíkt.

  • 1) Já. Mín líðan notar Kara Connect til að veita fjarviðtöl. Kara er öruggur hugbúnaður þar sem unnt er að eiga samskipti á aðgengilegan hátt. Kara fylgir ítrustu öryggiskröfum persónuverndar varðandi persónuupplýsingar og gögn um skjólstæðinga. 2) Enginn hefur aðgang að gögnum um þig nema þú og þinn sálfræðingur. Sálfræðingar hjá Mín líðan eru bundnir þagnarskyldu sem þýðir að allar upplýsingar sem þú gefur upp í meðferðinni eru trúnaðarmál. Þó eru undantekningar á þeirri reglu, þ.e. ef talið er að þú sért í hættu eða einhver annar í kringum þig (sjá nánar undir 'Skilmálar' á heimasvæði þínu hjá Kara Connect). Sálfræðingar hjá Mín líðan starfa í samræmi við samnorrænar siðareglur sem gilda fyrir félaga í Sálfræðingafélagi Íslands. Hægt er að fá nánari upplýsingar um þagnarskyldu sálfræðinga hjá Embætti landlæknis.

  • Hægt er að hala niður Kara Connect appinu (til í Play Store eða App store) og mæta þar í myndfund. Best er að nota Google Chrome, nema ef notaður er iphone/ipad, þá er mælt með að nota Safari.