Psychologists | Mín líðan

Þegar þú þarft aðeins meiri ráðgjöf

Sálfræðiviðtöl á netinu

Mín líðan býður upp á fjarviðtöl, sem eru hefðbundin sálfræðiviðtöl sem fara fram í gegnum netið. Þar getur þú sótt ráðgjöf eða sálfræðimeðferð hjá löggildum sálfræðingum. Í fjarviðtölum er hægt að fá aðstoð við hvers konar sálrænum vanda. Sálfræðingar Mín líðan veita þér góða og persónulega þjónustu. Markmið okkar er aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu með því að bjóða upp á sálfræðimeðferð sem hægt er að sinna hvar sem er!

Choose your psychologist

Our psychologists

Ingibjörg Thors sálfræðingur

ingibjorg@minlidan.is

ATH! Er ekki að taka nýja skjólstæðinga eins og er. Dr. Ingibjörg er sálfræðingur og einn af eigendum Mín líðan. Hún býður upp á almenna sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna. Hún hefur sérhæft sig í gagnreyndum, árangursríkum meðferðum við kvíðaröskunum og hefur unnið undir handleiðslu erlendra sérfræðinga á þeim starfsvettvangi síðan árið 2012. Ingibjörg hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við kvíða, depurð, streitu/kulnun, lágt sjálfsmat eða þurfa aðstoð vegna áfalla. Ingibjörg getur veitt sálfræðiviðtöl eftir kl. 16 á daginn.

Ingibjörg Thors
Alida Ósk Smáradóttir sálfræðingur

alida@minlidan.is

Alida Ósk er sálfræðingur hjá Mín líðan og býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir ungmenni og fullorðna. Alida hefur mikla reynslu af ADHD greiningum hjá fullorðnum, en hún starfaði áður á geðsviði Landspítala. Alida beitir gagnreyndum aðferðum í að draga úr sálrænum vanda og hefur sérstakan áhuga á meðferð við ADHD og kvíðaröskunum (s.s. félagskvíða og almennri kvíðaröskun).

Alida Ósk Smáradóttir
Tanja Dögg Björnsdóttir framkvæmdastjóri og sálfræðingur

tanja@minlidan.is

Tanja Dögg er stofnandi, framkvæmdastjóri og sálfræðingur hjá Mín líðan. Tanja sinnir greiningu og meðferð sálræns vanda hjá ungmennum og fullorðnum og notar aðeins gagnreyndar meðferðir. Hún hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við félagskvíða, þunglyndi og lágt sjálfsmat, hafa gengið í gegnum áföll og þá sem upplifa andlega vanlíðan á meðgöngu og eftir fæðingu.

Tanja Dögg Björnsdóttir
Sigrún Arnardóttir sálfræðingur

sigrun@minlidan.is

Sigrún er sálfræðingur hjá Mín líðan og býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir ungmenni og fullorðna. Sigrún hefur mikla reynslu af meðferðarvinnu og notar aðeins gagnreyndar meðferðir. Hún hefur sérstakan áhuga á að aðstoða þá sem glíma við meðvirkni, samskiptavanda, ADHD, lágt sjálfsmat og einkenni þunglyndis og kvíða.

Sigrún Arnardóttir